Hvað er hamraborgarráðið og af hverju er ég í tveimur húsfélögum?
Hamraborgarráðið er sameiginlegt húsfélag fyrir Hamraborg 14-38. Allir stigagangarnir eru svo einnig með húsfélag sem sinnir erindum fyrir hvert hús. Starfsemi Hamraborgarráðsins snýr að sameiginlegri eign allra stigaganganna, sem er bílakjallarinn.
Fyrir hvað er eiginlega verið að borga?
Húsfélagsgjöld Hamraborgarráðsins eru greidd ársfjórðungslega. Með þessum greiðslum eru eigendur að greiða fyrir rekstur og viðhald sameiginlegu eignarinnar. Meðal helstu útgjalda eru rafmagn, eldvarnarkerfi, öryggismyndavélar og þrifnaður.
Eru einhverjar tekjur af bílakjallaranum?
Eins og er, þá eru engar tekjur af bílakjallaranum. Til lengri tíma, þá hefur verið ólöglegt að rukka fyrir bílastæði í Kópavogi. Þau lög voru nýlega endurskoðuð, og núna er það leyfilegt. Það er verið að vinna í að byggja upp samstarf með aðila sem sérhæfir sig í aðgangstýringu bílastæða. Með þessu kerfi mun Hamraborgarráðið byrja að safna einhverjum tekjum og auk þess passað upp á að bílastæðin verði fyrir þá sem eiga þau.
Hægt er að lesa um hérna:
https://www.hamraborgarradid.is/frettir/green-parking
Upp hafa komið meiri erfiðleikar sem stjórnin er að reyna að vinna úr. Þegar það er búið að leysa úr þeim erfiðleikum, og næstu skref verða skýr, þá verður það kynnt á vefsíðunni.
Eru engin bílastæðakort lengur?
Nei, bílastæðakortin eru ekki lengur í notkun. Í bílakjallaranum er mikið af tjónabílum og öðrum bílum sem eru geymdir í leyfisleysi. Það er meira en fullt starf að fylgjast með þessum bílastæðakortum og rökræða við aðila sem eru að leggja í leyfisleysi. Við höfum trú á því að samstarfið með aðgangsstýringarkerfið muni leysa þessi vandamál og kemur í staðinn fyrir bílastæðakortin.
Af hverju er hlið inní Geislagarðinn?
Platan á milli Geislagarðs og bílakjallarans hefur orðið fyrir tjóni frá of þungum bifreiðum og er orðin óvenju viðkvæm. Þrátt fyrir skylti sem varar við þyngartakmörkunum, þá fylgja ekki allir aðilar þeim eftir.
Þetta hlið hefur aldrei fengið að standa í friði. Íbúar eru mjög óþolinmóðir og eyðileggja það jafn óðum. Það tekur margar vikur að fá viðgerðarmann til að laga hliðið, og svo er það yfirleitt eyðilegt 1-2 dögum eftir að það er lagað. Núna er komin upp öryggismyndavél hjá hliðinu. Viðkomandi sem eyðileggur hliðið getur átt von á sekt fyrir viðgerðarkostnaðinum. (Líklegast í kringum 50.000kr).
Í bili er hliðið opið til að koma í veg fyrir skemmdir á því.
Ef þú hefur spurningu sem hefur ekki verið svarað, þá skaltu endilega senda inn fyrirspurn i gegnum tilkynningarkerfið okkar. Þá mun stjórnarmeðlimur hafa samband og bæta svarinu við listann hér ef það á við, svo að fleiri geti séð svarið.