Upplýsingar um leigu á bílastæðum og uppsetningu á bílastæðakerfi
26 nóvember 2023
Á aðalfundi Hamraborgarráðsins 6. mars 2023 var kynnt tillaga um að ganga til samninga við Green Parking, dótturfélag Öryggismiðstöðvarinnar, sem sérhæfir sig í bílastæðalausnum um leigu á bílastæðum í bílakjallara og uppsetningu á bílastæðakerfi með gjaldtöku á lausum bílastæðum. Stjórn Hamraborgarráðsins mun boða til húsfundar í desember nk. og leggja fram tillögu um að gengið verði til samninga við Green Parking. Bréf þetta er sent eigendum til kynningar en mikilvægt er að eigendur mæti á húsfundinn þegar ákvörðun verður tekin hvort gera eigi leigusamning við Green Parking. Húsfundurinn verður auglýstur síðar og verður samningurinn sem greiða á atkvæði um sendur eigendum fyrir fundinn.
Í bílakjallaranum eru 270 bílastæði og fylgir eitt bílastæði hverri íbúð, 11 bílastæði fylgja verslunum og Kópavogsbær á 50 bílastæði. Bílastæðin eru ómerkt. Sumir leggja fleiri en einum bíl og einnig eru aðilar sem eiga ekki heima í húsinu að leggja bílum þar til lengri eða skemmri tíma. Erfitt hefur verið að hafa yfirsýn yfir hverjir hafa rétt á að leggja þar og hverjir ekki.
Sökum fjölda bíla sem eru að leggja í bílakjallarann í leyfisleysi eru færri bílastæði fyrir íbúa. Töluverðar líkur eru á því að ástandið eigi eftir að versna mikið þegar framkvæmdir í Fannborg hefjast. Með því að setja upp bílastæðakerfi (aðgangsstýringu), þar sem m.a. hver íbúð hefur rétt á einu gjaldfrjálsu stæði en aðrir þurfi að greiða fyrir afnotin, er hægt að tryggja jafnan rétt eigenda að bílastæðum, nýta bílastæðin þegar fólk er í vinnu á daginn og fá tekjur fyrir afnot af
stæðunum. Þannig yrðu bílastæðin leigð Green Parking. Fjöldi bílastæða til útleigu miðað við áætlaða nýtingu yrði að jafnaði innan við 20%. Eigendur myndu skrá bíla á svokallaðan hvítlista og hefði eigandi hverrar íbúðar rétt á einu gjaldfrjálsu stæði hverju sinni, verslanir 11 stæðum og Kópavogsbær 50 þannig að ef viðkomandi leggur fleiri bílum hverju sinni en þeir hafa rétt á þó bílarnir séu á svokölluðum hvítlista þá greiða eigendur fyrir afnotin.
Markmiðið með bílastæðakerfinu er að stýra nýtingu bílastæða með hagsmuni íbúa og húseigenda í huga þannig að jafnræðis sé gætt milli þeirra og bílastæðin séu laus fyrir húseigendur en rukka aðra sem nýta bílastæðin um bílastæðagjald.
Fyrir neðan er hlekkur á pdf sem var dreyft í alla póstkassa í Hamraborg 14-38 þann 26. Nóvember 2023
Upplýsingabréf varðandi bílastæðakerfið