Gjaldtaka hefst í bílakjallaranum
25 febrúar 2024
Gjaldtaka í bílakjallara Hamraborgarinnar hefst að öllu óbreyttu föstudaginn 1. mars. Um er að ræða handvirka skráningu í bílastæðin. Rukkun fer fram í gegnum EasyPark appið og eru fyrstu 30 mínúturnar gjaldfrjálsar.
Gjaldtaka er á virkum dögum frá 08:00 til 18:00 og á laugardögum frá 10:00 til 16:00.
Skilti munu vera sett upp í vikunni til að útskýra fyrir fólki sem notar bílakjallarann.
Íbúar þurfa ekki að greiða fyrir einn bíl sem þeir hafa inni í bílakjallaranum. Hins vegar þarf að greiða fyrir alla bíla umfram það stæði sem þeir eiga samkvæmt þinglýstri eignaaskiptayfirlýsingu.
Green Parking ehf. sér um rekstur bílastæða í Hamraborgarbílakjallaranum fyrir hönd eigenda og húsfélagsins auk þjónustu við bílaeigendur í tengslum við notkun bílastæðanna.
Í haust mun koma upp sjálfvirkt myndavélakerfi sem rukkar bílaeigendur þegar þeir keyra inn og út af svæðinu. Fyrir þá uppsetningu mun þurfa að safna bílnúmerum eigenda fyrir hvítlista. Þennan hvítlista þarf ekki fyrir núverandi útfærslu.
Allar spurningar sem tengjast notkun Easy Park appsins skulu berast til þjónustuvers Easy Park: s.546-9612.