Fundarboð á fund Hamraborgarráðsins 19. desember, kl. 17:30
14 desember 2023
Hér með er boðað til húsfundar í húsfélaginu Hamraborgarráðinu, Hamraborg 14-38, Kópavogi.
Fundarstaður: Catalina veitingahús, Hamraborg 11, Kópavogi
Fundartími: Þriðjudagurinn 19. desember 2023 kl. 17:30
Fundarefni:
- Setning fundar og val á fundarstjóra og fundarritara
- Umræða og ákvörðunartaka um að gera leigusamning við Green Parking um leigu á hluta af bílakjallara og bílastæðum og mun Green Parking setja upp bílastæðakerfi til að stýra aðgangi og sjá um gjaldtöku á lausum bílastæðum.
Á fundinum verður borin aftur upp svohljóðandi tillaga sem atkvæði voru greidd um á húsfundi 12. desember 2023:
**Tillaga stjórnar:**Að samþykkt verði að Hamraborgarráðið gera 3ja ára leigusamning við Green Parking um leigu á hluta bílastæða í bílakjallaranum og setji upp og stýri bílastæðakerfi.
Á húsfundinum 12. desember sl. voru mættir eigendur umboðsmenn fyrir samtals 80 eignarhluta af 232 í Hamraborg 14-38 og fyrir Kópavogsbæ sem á 50 bílastæði. Samtals 68 eignarhlutar og Kópavogsbær sem á 50 bílastæði greiddu atkvæði með tillögunni en 11 eignarhlutar greiddu atkvæði gegn tillögunni. Stjórn Hamraborgarráðsins telur að samþykki 2/3 hluta eigenda bæði miðað við fjölda og eignarhluta þurfi að greiða atkvæði með tillögunni. Þegar um er að ræða ákvarðanir sem 2/3 hluta eigenda þurfa að samþykkja bæði miðað við fjölda og eignarhluta verður a.m.k. helmingur eigenda bæði miðað við fjölda og eignarhluta að vera á fundi og tilskilinn meiri hluti þeirra að greiða atkvæði með tillögu. Ef fundarsókn er ekki nægileg samkvæmt þessu skilyrði en tillagan þó samþykkt með 2/3 hluta atkvæða á fundinum bæði miðað við fjölda og eignarhluta þá skal innan 14 daga halda nýjan fund og bera tillöguna aftur upp á honum. Getur sá fundur tekið ákvörðun án tillits til fundarsóknar og fái tillagan tilskilinn meiri hluta (2/3) á fundinum telst hún samþykkt.
Þar sem fundarsókn var ekki nægileg á fundinum 12. desember sl. en tillagan þó samþykkt með 2/3 hlutum atkvæða á fundinum bæði miðað við fjölda og eignarhluta er nú boðað til nýs fundar sem haldinn er innan 14 daga frá þeim fundi og tillagan borin upp aftur.
- Önnur mál
- Fundargerð lesin og leiðrétt
- Fundi slitið
Við viljum ítreka mikilvægi þess að þeir sem ætla sér að mæta á fundinn fyrir hönd annars aðila komi með skriflegt umboð meðferðis. Slíkt umboð má finna á vefsíðu Eignareksturs.
Samkvæmt dagskrá verður mikilvægt mál tekið fyrir á fundinum til umræðu og ákvörðunar og er hér með eindregið skorað á eigendur að mæta á fundinn til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri og taka þátt í ákvörðun.
Fundur þessi er boðaður í samræmi við ákvæði fjöleignahúsalaga nr. 26/1994 og verður fundurinn haldinn samkvæmt fyrirmælum þeirra. Fundarboð þetta er hengt upp í sameign, sent í pósti til þeirra félagsmanna sem óskað hafa sérstaklega eftir því að fá fundarboðið sent á annað heimilisfang eða með tölvupósti þann dag sem að neðan greinir.
Kópavogur 14. desember 2023
Fyrir hönd stjórnar húsfélagsins Hamraborgarráð, húsfélag