Fundarboð á fund Hamraborgarráðsins 12. desember, kl. 17:30
04 desember 2023
Hér með er boðað til húsfundar í húsfélaginu Hamraborgarráðinu, Hamraborg 14-38, Kópavogi
Fundarstaður: Catalina veitingahús, Hamraborg 11, Kópavogi
Fundartími: Þriðjudagurinn 12. desember 2023 kl. 17:30
Fundarefni:
- Setning fundar og val á fundarstjóra og fundarritara.
- Umræða og ákvörðunartaka um að gera leigusamning við Green Parking um leigu á hluta af bílakjallara og bílastæðum og mun Green Parking setja upp bílastæðakerfi til að stýra aðgangi og sjá um gjaldtöku á lausum bílastæðum
- Önnur mál.
- Fundargerð lesin og leiðrétt.
- Fundi slitið.
Í bílakjallaranum eru 270 ómerkt bílastæði og fylgir 1 bílastæði hverri íbúð, 11 bílastæði fylgja verslunum og Kópavogsbær á 50 bílastæði. Í stað þess að afmarkað sé hvaða bílastæði eru leigð er gert ráð fyrir að um leigu á óverulegum hluta bílakjallarans sé að ræða eða sem nemur að jafnaði innan við 20% bílastæða. Gert er ráð fyrir að samtals um 270 bílar séu skráðir á svokallaðan hvítlista og greiða þeir ekki fyrir afnotin af bílastæðunum á þeim tíma sólarhringsins sem gjaldtaka er á stæðunum. Þannig hefur hver íbúð rétt á einu gjaldfrjálsu stæði á þeim tíma sem rukkað er, verslanir rétt á 11 stæðum og Kópavogsbær rétt á 50 stæðum. Markmiðið með leigu bílastæðanna er að stýra nýtingu bílastæða þannig að bílastæðin séu laus fyrir bílastæðaeigendur en Green Parking rukkar aðra sem nýta bílastæðin um bílastæðagjald milli kl. 8 og 18 virka daga og milli kl. 10 og 16 á laugardögum og greiðir Hamraborgarráðinu í leigu sem nemur helming af útleigu bílastæðanna mánaðarlega. Á fundinum verður kynntur leigusamningur við Green Parking og atkvæði greidd um hvort gera eigi slíkan samning.
Tillaga stjórnar: Að samþykkt verði að Hamraborgarráðið gera 3ja ára leigusamning við Green Parking um leigu á hluta bílastæða í bílakjallaranum og setji upp og stýri bílastæðakerfi.
_Við viljum ítreka mikilvægi þess að þeir sem ætla sér að mæta á fundinn fyrir hönd annars aðila komi með skriflegt umboð meðferðis. Slíkt umboð má finna á vefsíðu Eignareksturs._
Samkvæmt dagskrá verður mikilvægt mál tekið fyrir á fundinum til umræðu og ákvörðunar og er hér með eindregið skorað á eigendur að mæta á fundinn til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri og taka þátt í ákvörðun.
Fundur þessi er boðaður í samræmi við ákvæði fjöleignahúsalaga nr. 26/1994 og verður fundurinn haldinn samkvæmt fyrirmælum þeirra. Fundarboð þetta er hengt upp í sameign, sent í pósti til þeirra félagsmanna sem óskað hafa sérstaklega eftir því að fá fundarboðið sent á annað heimilisfang eða með tölvupósti þann dag sem að neðan greinir.
Kópavogur 4. desember 2023
Fyrir hönd stjórnar húsfélagsins Hamraborgarráð, húsfélag